Katlafossar (nr. 36)Mynd Sigurþór Hólm
Fáskrúð í Dölum er fjölbreytt, skemmtileg og krefjandi laxveiðiá sem er ofarlega í huga margra félagsmanna Stangaveiðifélags Akraness, enda félagið haft ítök í ánni mestmegnis frá árinu 1942.
Fáskrúð skilur að Laxárdalshrepp og Hvammssveit en áin á upptök sín á Gaflfellsheiði tugi kílómetra frá sjó og fellur svo til sjávar í Hvammsfjörð um 8 km fyrir norðan Búðardal. Áin liðast ein um 20 km leið til sjávar en laxgenga svæði hennar er um 12-14 km langt og hefur 36 merkta veiðistaði. Áin getur talist frekar aðgengileg sem laxveiðiá þrátt fyrir stórgrýtt og magnað landslag á köflum.
Svæðið nær frá Katlafossi niður að sjó en þar er að finna veiðistaðina Neðri- og Efri Brúarstrengi og sjást þeir vel þegar ekið er yfir þjóðvegsbrúna við ós árinnar.
Í góðu vatni kemst stöku lax upp fyrir efsta veiðistaðinn Katlafoss og eru þess dæmi að fengist hafi þar laxar. Einungis er þar um 400 m. kafla að ræða og hreint ómögulegt fyrir laxinn að ganga enn lengra þar sem svokallaður Efri-Foss hindrar laxgengd með öllu.
Veitt er í Fáskrúð frá 30. júní til 30. september ár hvert og hefur félagið til umráða um helming veiðidaga í ánni á móti SVFR eða aðra hverja sex daga og víxlast vikurnar ár frá ári. Sumarið 2011 hefst veiði á vegum félagsins 6. júlí og kemur það þá einnig í hlut félagsins að loka ánni 28-30. september. Hvert útselt holl eru tveir dagar frá hádegi til hádegis.
Mest er veitt á þrjár stangir í Fáskrúð en áin hentar engu að síður mjög vel sem tveggja stanga svæði. Aðeins tvö höll SVFA sumarið 2011 eru þriggja stanga.
Sumarið 2010 veiddust 523 laxar sem er með því besta frá upphafi. Sumarið 2009 veiddust 456 laxar og 2008 veiddust 433 laxar. Metveiði í Fáskrúð er 578 laxar frá árinu 1971. Afar fjölbreyttir veiðistaðir eru í ánni og skiptast á fallegir fluguveiðistaðir og skemmtilegir maðkastaðir. Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn en þrátt fyrir það fer spónn ekkert sérstaklega vel í ánni og er lítið notaður nema e.t.v. í miklu vatni.
Kvótamál eru til nýbreytni í Fáskrúð en kvóti er nú 12 laxar á holl. Umfram kvóta má veiða og sleppa. Veiðimenn eru hvattir til þess að sleppa öllum laxi sem kostur er og þá sérstaklega hrygnum. Gott er að hafa þetta í huga sér í lagi þegar komið er fram í september.
Utan alfaraleiðar án hita og rafmagns hefur aðbúnaður veiðihúss félagsins við Fáskrúð töluverðan sjarma sem erfitt er að líkja saman við önnur ársvæði þegar farið er í veiði. Sérstaklega ber þar að nefna nálægðina við ána en staðsetningin ein og sér fær fólk til þess að gleyma hversdagsleikanum við dvöl sína í Fáskrúð. Aðbúnaðurinn er í senn góður og gamaldags og hefur lifað tímana tvenna og það er jafnan sá tími, gamli tíminn, sem menn upplifa þegar rennt er í hlað við veiðihúsið í Fáskrúð.
Veiðihúsið er afar vel staðsett í göngufæri frá einum fengsælasta veiðistaðnum í Fáskrúð, Hellufljótinu. Fjögur lítil svefnherbergi með svefnplássi fyrir 7-9 manns eru í húsinu ásamt salernisaðstöðu. Ágætis borðkrókur ásamt setustofu er sameiginlegur eldunaraðstöðu. Á verönd er góður sólpallur. Húsið er búið sólarrafhlöðu til lýsingar og er gas notað til kyndingar. Gas-ísskápur, gasgrill og gaseldavél eru til staðar. Hljómflutningstæki knúið af sólarrafhlöðu er í húsinu.
- Gagnlegar upplýsingar -
Staðsetning: Vesturland, um 8 km fyrir norðan Búðardal. Í um 120 km fjarlægð frá Akranesi og 160 km frá Reykjavík. Veiðihús SVFA gps hnit: 65°11'12.23"N, 21°40'39.15"W (óstaðfest)
Akstursleið: Akrafjallsvegur (51) og Þjóðvegur (1) í gegnum Borgarnes. Ekinn er Vestfjarðarvegur (60) yfir Bröttubrekku til Búðardals. Stuttu síðar er komið að afleggjaranum að Fáskrúð á hægri hönd, merkt Ljárskógar. Fylgið slóðanum upp dalinn þangað til komið er að veiðihúsi SVFA skammt frá vaði við Þverá.
Veiðisvæði: 12-14 km langt. Merktir veiðistaðir eru 36 talsins, frá Katlafossi niður að þjóðvegsbrú.
Veiðivegur: Í eðlilegu árferði við Fáskrúð getur talist nóg að vera á hvaða 4x4 bifreið sem er. Í miklum rigningum getur vatnsmagn hinsvegar vaxið mikið í þverá sem fellur út í veiðistaðinn Ármótastreng (nr. 9). Yfir þverána þarf að fara til þess að komast ofar á veiðisvæðið.
Tímabil: Veitt er frá 1. júlí til 30. september. SVFA hefur til umráða helmingi veiðidaga á móti SVFR eða aðra hverja sex daga.
Veiðileyfi: Hvert veiðileyfi gildir fyrir tvær stangir í tvo daga. Veiði hefst eftir hádegi á komudegi og lýkur kl. 13 á brottfarardegi. Hafið ávallt veiðileyfi meðferðis.
Umgengni: Veiðimenn mega koma í hús 1 klst. fyrir veiðitíma en brottfarardag skulu þeir rýma hús 1 kls
t. eftir að veiðitíma líkur. Munið ávallt að ræsta hús og hirða allt rusl. Ruslagámar eru í Búðardal. Hafið samband við stjórn SVFA áður en lagt er af stað vegna upplýsinga um lykil að veiðihúsinu. Ef upp koma vandamál hafið samband við formann félagsins (Hafsteinn, 899-6132) eða veiðivörð.
Veiðivörður:
Daglegur veiðitími: Veitt er frá kl. 7-13 og kl.16-22 fram til 14. ágúst. Eftir 14. ágúst er seinni vaktin færð fram um klukkutíma eða frá kl. 15-21.
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Kvóti SVFA: 12 laxar á holl, umfram það er veitt og sleppt.
Veiði síðastliðin ár: 2010 - 523 laxar. 2009 - 456 laxar. 2008 - 432 laxar.
Veiðibók 2012: Ef veiðibók vantar í hús er líklegast að hún sé við veiðihús SVFR að Ljárskógum.
Veiðivörður hefur lykla af báðum veiðihúsum ef veiðibækur eru læstar inni.
Tilkynningar
Þriðja fluguhnýtingakvöld vetrarins verður miðvikudaginn 22. febrúar kl 20:00 í húsnæði félagsins að Suðurgötu 108 klukkan 20:00...
Lesa áfram
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...
Lesa áfram
Myndbönd af starfsemi SVFA
Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.