Nýlega kom út skýrsla árnefndar SVFR við Andakílsá fyrir tímabilið 2009.
Þar kemur fram að á liðnu ári veiddust samtals 706 laxar á svæðinu. Þar af 694 á laxasvæði árinnar.
Þetta er því næst besta veiðin af síðastliðnum 40 árum í kílnum. Besta sumarið var 2008 þegar 839 laxar veiddust. Beina slóð á skýrsluna frá SVFR er að finna hér.
Eins og kunnugt er fer SVFA með sölu fjórðungs veiðileyfa í ánni í góðu samstarfi við SVFR sem sér um hinn þriðjung veiðileyfanna. Við höfum nú tekið sérstaklega saman veiðina á dögum félagsins ásamt ýmsum öðrum fróðleik frá sumrinu.
Góð heildarveiði á dögum SVFA
Heildarveiði á laxasvæðinu í sumar var 694 laxar en þar af komu 242 laxar á land á dögum SVFA. Það er því yfir þriðjungur heildaraflans í sumar eða alls 35% sem veiddist á dögum félagsins.
Öflug meðalveiði á hverja stöng.
Á dögum félagsins var meðalveiðin 4.75 laxar per stöng á dag á móti 2.95 löxum per stöng á dögum SVFR. Yfir tímabilið allt veiddust að meðaltali 3.4 laxar per stöng á dag.
Yfirburða góð fluguveiði á dögum SVFA.
Af 242 veiddum löxum á dögum félagsins fengust 187 á flugu á móti 56 á maðk. Dagar SVFA skiluðu því 77% á flugu og 23% á maðk. Dagar SVFR skiluðu svo 69% á flugu og 31% á maðk og í heildina yfir sumarið var 71.5% veitt á flugu en 28.5% á maðk.
Bestu holl SVFA í sumar voru í september.
Mest veiddist þann 11. sept af öllum dögum SVFA á tímabilinu eða alls 33 laxar. Næst mest veiddist þann 15. sept þegar 30 laxar komu á land. Þar á eftir komu tvö júlí holl með fína veiði og þar á eftir annar stakur septemberdagur.
Sjá nánari skiptingu í töflu hér til hliðar.
Verstu dagar SVFA.
Enginn lax veiddist á dögum félagsins 22 og 26. júní. Næst lélegustu holl sumarsins voru svo 1-2. júlí, 3-4. sept og 10. sept en öll þessi holl hafa einungis 2 laxa skráða í bók.
Slakur árangur í því að veiða og sleppa.
Á dögum SVFA slepptu veiðimenn 9 löxum af 242 eða 3.71% aflans og á dögum SVFR slepptu veiðimenn 22 löxum af 452 eða 4.86%. Í heildina var einungis 31 af 694 löxum sleppt yfir allt tímabilið í Andakílsá en það gera 4.46%.
Til samanburðar má geta þess að 12.72% heildaraflans í Fáskrúð var sleppt í sumar og þar er veiðiskiptingin þveröfug eða nálægt 73% maðkur og 27% fluga !


Efri Fossbakkahylur náði fornri frægð í sumar.

Þrjú var aflahæstur með 211 laxa veiði.

Efri Fossbakkahylur endaði í 191 löxum.

Úr Nátthagahyl komu 85 laxar.

Tvö og hálft skilaði 72 löxum á land.

Laugafljót endaði í 51 skráðum löxum.

Volti skilaði 25 löxum í sumar.

Sleifarkvarnir voru með 22 laxa skráða.
Ljósmyndir; AMK - Ábendingar berist á tölvupósti hér
Veiðin í Fáskrúð var mjög góð í sumar og hljóðaði upp á 456 laxa sem er með því betra sem veiðst hefur á svæðinu frá upphafi. Ef byrjað er á að skoða viku 1 hefur veiðin farið heldur rólega af stað og skilaði aðeins níu löxum á land. Laxarnir fengust þó nokkuð...
Sextán manns sóttu aðalfund Landssambands Stangaveiðifélaga undir yfirskriftinni Framtíð LS og hlutverk þess fyrir Stangaveiðifélög. Fundurinn var að þessu sinni haldinn hjá okkur í SVFA á Akranesi síðastliðinn laugardag. Fyrr um morguninn fór fram formannafundur þar...
Við birtum nú myndasyrpu sem við fengum senda fyrr í sumar frá veiðimönnum sem voru við veiðar í Fáskrúð dagana 11-13. ágúst. Myndirnar sýna veiðimanninn Heimi Kristjánsson og son hans, glíma við lax í Stebbastreng frá einstaklega skemmtilegu sjónarhorni. Veiðifélagi...
Tilkynningar
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...
Lesa áfram
Myndbönd af starfsemi SVFA
Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.