Sunnudagur 11. október 2009
Myndir: Fáskrúð í Dölum - Stebbastrengur
Við birtum nú myndasyrpu sem við fengum senda fyrr í sumar frá veiðimönnum sem voru við veiðar í Fáskrúð dagana 11-13. ágúst.
Myndirnar sýna veiðimanninn Heimi Kristjánsson og son hans, glíma við lax í Stebbastreng frá einstaklega skemmtilegu sjónarhorni. Veiðifélagi Heimis í þessum túr var Hafsteinn Kjartansson og var hann staðsettur í hlíðinni fyrir ofan veiðistaðinn og tók myndirnar.
Myndasyrpuna frá þeim félögum má sjá í heild með því að smella á meira hér að neðan...
Félagsmenn jafnt sem aðrir eru hvattir til þess að senda vefnum myndir frá liðnum veiðitímabilum sem gaman væri að birta í vetur.
Myndasyrpa frá Fáskrúð í Dölum 11 - 13. ágúst 2009 - Stebbastrengur
Veiðim. Heimir Kristjánsson- Ljósm. Hafsteinn Kjartansson.













Miðvikudagur 30. september 2009
Veiði lokið í Fáskrúð í Dölum - 456 laxar á land
Veiði lauk á hádegi í dag við Fáskrúð í Dölum. Síðasta skagahollið landaði fjórum löxum við erfiðar aðstæður og mikið vatn. Að sögn veiðimanna setti mikill kuldi strik í reikninginn við veiðiskap. Krapi var í ánni og sem dæmi má nefna að neysluvatnið var frosið...
Lesa áfram
Mánudagur 28. september 2009
Andakílsá stendur í 649 löxum og Fáskrúð með 452 laxa
Mjög góð veiði hefur verið undanfarnar þrjár vikur í Andakílsá. Skagaholl sem var við veiðar í gær, sunnudaginn 27. september landaði 22 löxum. Þar af fengust 20 á flugu og 2 á maðk. Mikið vatn er í kílnum og fengu veiðimenn 18 af þessum löxum frá Laugafljóti og niður...
Lesa áfram
Mánudagur 21. september 2009
Fáskrúð í Dölum orðin betri en í fyrra með 433 laxa veiði
Fáskrúð í Dölum hafði á hádegi í gær 20. september, náð 433 laxa veiði, sem er einum laxi meira en allt tímabilið í fyrra. Nú eiga fimm holl enn eftir að ljúka veiðum svo þessi tala á eflaust eftir að hækka. Misskilningur hefur átt sér stað í sambandi...
Lesa áfram
Tilkynningar
Föstudagur 3. febrúar 2012
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...
Lesa áfram