Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Miðvikudagur 16. júní 2010

Fáskrúð í Dölum opnar senn

Veiðisumarið er formlega hafið. Góðar opnanir og fréttir af laxaferðum víða um land gefa veiðimönnum óneitanlega tækifæri til að hlakka enn frekar til sumarsins við Fáskrúð. Ekki er ólíklegt að sá silfraði fari að láta sjá sig þar en opnað verður fyrir veiði eftir hádegi þann 30. júní í Dölunum.

Í fyrsta skipti í sögunni var settur kvóti á laxadráp í Fáskrúð sumarið 2009. Var það gert í ljósi rannsókna Veiðimálastofnunar árið 2007 á seiðabúskap og uppvaxtarskilyrðum seiða við ána. Þessi kvóti hljómar upp á tólf laxa á hvert tveggja daga holl. Umfram kvóta má að sjálfsögðu veiða og sleppa.

 

Niðurstöður þessara rannsókna sýndu að svokölluð seiðavísitala mældist fremur lág, en sú vísitala endurspeglar m.a. seiðaþéttleika og seiðamagn. Þessar tölur í Fáskrúð voru t.a.m. mun lægri en mældar voru á sama tíma hjá nágrannaánum Krossá og Flekkudalsá. Lægri seiðaþéttleiki getur m.a. stafað af minni hrygningu.

 

Sérstaklega er mælst til þess að laxar með tveggja ára sjávardvöl að baki sé sleppt aftur í Fáskrúð þar sem hlutdeild stórlaxa hefur farið mjög lækkandi á undanförnum árum. Einnig er bent á að lengd sjávardvalar laxa sé að hluta til arfbundin og því hafi það mikla þýðingu fyrir þann eiginleika að stórlaxinum sé hlíft. 

 

Að auki segir að 60 cm hrygna gefi af sér 4000 hrogn en hrygna sem er 75 cm gefi af sér 6500 hrogn. Samband er einnig milli stærðar hrygna og hrogna þannig að hrogn stórlaxa eru stærri, og seiði sem klekjast úr stærri hrognum eru lífvænlegri en seiði úr smærri hrognum.

 

Talið er að stærð laxastofna sé í góðu samræmi við gæði og stærð tiltækra búsvæða sem laxinn hefur til umráða. Í því samhengi er bent á að stór framleiðslusvæði fyrir laxaseiði séu einnig til staðar á ófiskgengum árhluta Þverár og fyrir ofan Katlafossa og svonefndan Efrifoss. Sem fyrsta skref í nýtingu ófiskgengra svæða væri mögulegt að flytja fullorðinn fisk upp fyrir Efrifoss og fylgjast með hrygningu hans þar og afkomu seiða. 

 

Mjög mikilvægur en fyrirhafnarlítill þáttur í eflingu laxastofns Fáskrúðar er, að aukin áhersla verði lögð á að veiðimenn sleppi veiddum löxum.

 

Með þessari einföldu framkvæmd er hægt að komast hjá stórtækari og viðameiri aðgerðum eins og frekari kvótasetningum eða að sú krafa verði gerð að eingöngu fluguveiðar verði stundaðar á ákveðnum tímabilum.

 

Fáskrúð sem er vel þekkt maðkaveiðiá geymir fleiri fluguveiðistaði en margan grunar. Aukin fluguveiði ásamt því að sleppa veiddum löxum er grundvöllur þess að árangur náist í að byggja upp seiðabúskap árinnar um ókomin ár. 

 

Samkvæmt veiðibók gáfu eftirfarandi veiðistaðir lax á flugu sumarið 2009:
Neðri og Efri Brúarstrengir, Miðfljót, Hellufljót, Ármótastrengur, Hrafnakvörn, Veiðileysa, Jóka, Leynir, Neðri Stapi, Efri Stapi, Viðbjóður, Neðri Barki, Efri Strengur, Viðauki, Laxhylur, Breiðan og Katlafossar.

 

Í einhverjum tilvika síðasta sumar mátti sjá fjölda laxa sleppt jafnvel þar sem kvóta hafði ekki verið náð. Því ber að fagna og vonast er til að aukin vakning verði á meðal veiðimanna í Fáskrúð á komandi sumri.

Mest var um sleppingar í september en þann mánuð veiddist minnst yfir sumarið, samtals 133 laxar. Þá var 32 löxum sleppt og 101 lax veginn.

 

Af vegnum löxum í september var tæpur helmingur hrygnur eða 48 talsins. Að lágmarki gefa 48 fimm punda smálaxahrygnur af sér 192.000 hrogn.

 

Mörgum kann að koma það á óvart að árin 2008 og 2009 veiddist vel í Fáskrúð þrátt fyrir lélega seiðamælingu árið 2007. Hins vegar kom það í ljós síðastliðið haust þegar ná átti í klakfisk að ekkert fannst. Dregið var á hylji án árangurs.

 

Göngum því vel um ána okkar og veltum því fyrir okkur hvort að ánægjan sem því fylgir að takast á við lax í Fáskrúð, felist í v eiðinni og baráttunni við fiskinn eða drápinu sjálfu.

 

Gleðilegt veiðisumar !

 

Nýgengnum laxi sleppt við Neðri Stapakvörn í Fáskrúð sumarið 2010

Nýgengnum laxi sleppt við Neðri Stapakvörn í ágúst sumarið 2009.

 

Veiðimaður með 80cm hrygnu (áætluð 5.3 kg) sem var sleppt aftur við veiðistaðinn Viðauka í september 2009.

Veiðimaður með 80cm hrygnu (áætluð 5.3 kg) sem var sleppt aftur við veiðistaðinn Viðauka í september 2009.

 

Veiðimenn landa og sleppa laxi við Laxhyl í ágústmánuði 2009.

Veiðimenn landa og sleppa laxi við Laxhyl í ágústmánuði 2009.

 












Mánudagur 14. júní 2010

Að sleppa laxi

Til að hámarka árangur veiðimanna sem ákveða að stunda veiða og sleppa á vegum félagsins leituðum við ráða hjá fróðari mönnum í þeim efnum. Fáir hafa víðtækari reynslu í því að veiða og sleppa hér á landi en Pétur Pétursson við Vatnsdalsá þar...

Lesa áfram


Miðvikudagur 6. janúar 2010

Tuttugu bestu árin í Fáskrúð frá 1941 til 2009

Við höfum undir höndum skemmtilegar heimildir yfir veiði í Fáskrúð allt frá árinu 1941. Tölurnar tók saman veiðimaðurinn og fyrrverandi formaður SVFA, Kjartan Guðmundsson. Heimildirnar eru úr gömlum veiðibókum sem eru að finna á skrifstofu...

Lesa áfram


Fimmtudagur 10. desember 2009

Andakílsá - Veiðisumarið 2009

Nýlega kom út skýrsla árnefndar SVFR við Andakílsá fyrir tímabilið 2009.   Þar kemur fram að á liðnu ári veiddust samtals 706 laxar á svæðinu. Þar af 694 á laxasvæði árinnar. Þetta er því næst besta veiðin af síðastliðnum 40 árum í kílnum. Besta sumarið var...

Lesa áfram


Tilkynningar


Föstudagur 3. febrúar 2012

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.