Miðvikudagur 16. nóvember 2011
Stangaveiðifélag SVFR framlengir í þremur veiðiám.
Bjarni Júlíusson formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur hefur varla undan þessa dagana að skrifa undir framlengar í veiðiánum en í morgun var skrifað undir nýja saminga í Laxá í Dölum og Fáskrúð í Dölum. Veiðin var dræm í Laxá í Dölum í sumar en veiðin hefur verið slöpp á 10 ára fresti í ánni svo þetta stendur allt til bóta. Og Stangaveiðifélagið skrifaði líka undir framlengingu í Andakílsá.
,,Það er gott að vera búinn að ganga frá þessum veiðiám," sagði Bjarni rétt eftir að hann skrifaði undir samingana.
Frétt tekinn af vefnum pressan.is
Föstudagur 24. júní 2011
Veiðidagur fjölskyldunnar 26. júní 2011
Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 26. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Landssamband Stangaveiðifélaga hefur staðið fyrir Veiðidegi Fjölskyldunnar í á þriðja áratug...
Lesa áfram
Mánudagur 30. maí 2011
Fluguveiðinámskeið Veiðiheims.
Dagana 4. og 5. júní fara fram fluguveiðinámskeið Veiðiheims við silungasvæði Andakílsár. Farið verður yfir allt sem viðkemur fluguveiðinni, fluguhnýtingar, veiðistaðalestur, hringrás lax og silungs og einnig verður farið yfir fluguköstin. Námskeiðin eru jafnt...
Lesa áfram
Þriðjudagur 17. maí 2011
Afmæliskvöldverður SVFA
Ákveðið hefur verið að afmæliskvöldverður Stangaveiðifélags Akraness verði föstudaginn 27. maí í Gamla kaupfélaginu að Kirkjubraut 11, Akranesi. Dagskráin hefst með fordrykk milli kl. 19:30 og 20:00. Verð Kr 3.000 og greiðist við innganginn. Eftirfarandi...
Lesa áfram
Tilkynningar
Föstudagur 3. febrúar 2012
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...
Lesa áfram