Þriðjudagur 17. maí 2011
Afmæliskvöldverður SVFA
Ákveðið hefur verið að afmæliskvöldverður Stangaveiðifélags Akraness
verði föstudaginn 27. maí í Gamla kaupfélaginu að Kirkjubraut 11, Akranesi.
Dagskráin hefst með fordrykk milli kl. 19:30 og 20:00.
Verð Kr 3.000 og greiðist við innganginn.
Eftirfarandi matseðill er í boði:
Forréttur : Nautacarpaccio.
Aðalréttur: Lambafille m/grænmeti bakaðri kartöflu og villisveppasósu.
Eftirréttur: Frönsk súkkulaðiterta, kaffi og cocnac.
Þeir sem hafa áhuga að vera með, vinsamlegast skrái sig í síðasta lagi á laugardag hjá Bjarna 899-6229, bjarni@veislumatur.is ) eða Halldóri Fannar (617-1724, halldorf@tengi.is).
Happdrætti og annað skemmtilegt verður í boði.
Makar velkomnir.
Fimmtudagur 5. maí 2011
Afmælishátíð Stangaveiðifélags Akraness.
Í tilefni 70. ára afmælis SVFA um þessar mundir hefur stjórn félagsins ákveðið að halda afmælisfagnað Í Gamla Kaupfélaginu föstudaginn 27. maí næstkomandi. Þáttöku þarf að tilkynna stjórnarmeðlimum fyrir 15. maí. (Bjarni 899-6229, bjarni@veislumatur.is...
Lesa áfram
Mánudagur 11. apríl 2011
Myndband í tilefni 70 ára afmælis SVFA
Stangaveiðifélag Akraness verður 70 ára núna í ár og var gert myndband í tilefni þess. Myndefni var tekið upp á stjórnarfundi, aðalfundi og söludegi veiðileyfa. Einnig var tekið upp viðtal við Hafstein formann. Myndbandið gerði Sævar Berg Sigurðsson...
Lesa áfram
Mánudagur 31. janúar 2011
Af aðalfundi og söludegi veiðileyfa
Aðalfundur félagsins fór fram síðastliðið miðvikudagskvöld. Ekkert framboð kom til stjórnarsetu í félaginu og verður því stjórnin óbreytt út árið. Tillögur sem bárust fundinum til lagabreytinga voru ekki samþykktar en þær hljóðuðu upp á að takmarka aðgang...
Lesa áfram
Tilkynningar
Föstudagur 3. febrúar 2012
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...
Lesa áfram