Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Sunnudagur 18. júlí 2010

Fáskrúð og Andakílsá

Andakílsá fór yfir 100 laxa múrinn í síðustu viku og er það svipuð veiði og á sama tíma í fyrra.

 

Skagadagarnir 8-10 júlí gáfu 18 laxa veiði. Holl sem veiddi stórstreymisdagana 12-14. júlí fékk 16 laxa og missti töluvert af löxum, en takan var oft á tíðum grönn á bæði flugu og maðk að sögn veiðimanna. Hollið þar á eftir landaði svo 17 löxum. 

 

Veiðimenn voru að fá laxa á fjölbreytilegum veiðistöðum eða allt frá stað nr. 3 til 13. Hollið 12-14 júlí landaði t.a.m. löxum úr veiðistöðum þrjú, fjögur, fimm, ellefu, tólf og þrettán.

 

Fáskrúð stóð í 75 löxum á hádegi 16. júlí en afar lítið vatn skilaði litlum sem engum nýjum laxi upp í ána í kringum stórstreymið þann 13. júlí. Skagahollið 12-14 júlí landaði 8 löxum og næsta holl var með 6 laxa.

Hellufljótið sem gaf ekki lax fyrr en í ágúst á síðasta tímabili hafði þann 16. júlí skilað 4 löxum á land í vatnsleysinu sem nú ríkir í Dölunum.

 

 

Flugulax úr Hellunni í Fáskrúð

Ásgrímur Kárason með lax úr Hellufljóti 15. júlí. Ljósm. Jónas Geirsson 

  

Stórlax þreyttur í Katlafossi í Fáskrúð

Ásgrímur glímir við 79 cm lax í Katlafossi 14. júlí Ljósm. Jónas Geirsson

 

Staurahylur í Andakílsá
Ólafur Ólafsson setur í einn við Staurahyl í Andakílsá 12. júlí. Ljósm. AMK

 

Stórahamarskvörn í Andakílsá

Jónmundur Ingólfsson með flugulax í veiðistaðnum Stóruhamarskvörn (nr13)  í Andakílsá 13. júlí.

 

Lax úr Stóruhamarskvörn í Andakílsá

Flugulax úr Stóruhamarskvörn 13. júlí.

 












Fimmtudagur 8. júlí 2010

Fjörtíu og sex fyrstu vikuna í Fáskrúð

Efri Brúarstrengur

Góður gangur hefur verið við Fáskrúð undanfarna daga en síðan áin opnaði 30. júní hafa verið færðir til bókar 46 laxar á stangirnar tvær. Til samanburðar veiddust 9 laxar fyrstu vikuna í fyrra.   Skagavikan var þannig að opnunarhollið landaði 10 löxum...

Lesa áfram


Fimmtudagur 1. júlí 2010

Kroppast upp í Fáskrúð

Lax úr Viðbjóð í dag.

Hvassviðri setti svip sinn á veiðiskap í Fáskrúð í dag en morgunvaktin skilaði einum laxi á land og þrír laxar fengust nú undir kvöld. Samtals eru þá komnir átta laxar á land þessa fyrstu daga í Fáskrúð en opnunarhollið líkur veiði á morgun. Í dag fengust tveir í Neðri...

Lesa áfram


Miðvikudagur 30. júní 2010

Góð byrjun í Fáskrúð

Fáskrúð í Dölum í dag

Skagamenn sem opnuðu Fáskrúð í dag lönduðu fjórum löxum á mið- og efra svæði árinnar.   Allir laxarnir fengust á flugu en Skúli Garðarsson fékk fyrsta laxinn í upphafi vaktar í veiðistaðnum Viðbjóð. Var það lúsugur smálax sem tók svarta frances keilutúpu...

Lesa áfram


Tilkynningar


Föstudagur 3. febrúar 2012

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.