Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Sunnudagur 18. október 2009

Frá aðalfundi Landssambands Stangaveiðifélaga

Aðalfundur LS 2009

Sextán manns sóttu aðalfund Landssambands Stangaveiðifélaga undir yfirskriftinni Framtíð LS og hlutverk þess fyrir Stangaveiðifélög.

Fundurinn var að þessu sinni haldinn hjá okkur í SVFA á Akranesi síðastliðinn laugardag. Fyrr um morguninn fór fram formannafundur þar sem formenn allra aðildarfélaga áttu kost á að sitja lokaðann fund.

 

Um hefðbundinn aðalfund var að ræða og var m.a. farið yfir ársskýrslu stj órnar og tilgang LS. Sambandið sem fyrst og fremst er starfrækt sem öflugur málsvari stangaveiðifélaga í landinu hafði á síðasta starfsári unnið að mörgum verkefnum sem snúa m.a. að samskiptum við opinbera aðila, stangaveiðifélög og hagsmunaaðila. Ásamt því hefur sambandið sinnt lögbundnum verkefnum og skemmtilegum átaksverkefnum s.s. fluguhnýtingakeppni og veiðidegi fjölskyldunnar.


Samþykkt var á fundinum að fresta kosningu til stjórnar og kosningu formanns til 19. nóvember næstkomandi. Sitjandi formaður er því enn um sinn okkar maður í Stangaveiðifélagi Akraness, Ingólfur Þorbjörnsson.

 

Samþykkt var ályktun LS um hugsanlega færslu Veiðimálastofnunar frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti til umhverfisráðuneytis og er ályktunin birt hér að neðan.



Aðalfundur Landssambands stangaveiðifélaga haldinn þann 17. október 2009 lýsir miklum áhyggjum af fyrirhuguðum flutningum á forræði Veiðimálastofnunar frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti til umhverfisráðuneytis. Með þessum flutningi myndi stefnt í hættu því góða samstarfi og samvinnu sem hagsmunaaðilar hafa átt við Veiðimálastofnun. Hér er sérstaklega horft til þess áherslumunar sem óneitanlega er  milli auðlindastjórnunar og umhverfisverndar. Aðalfundur LS leggur á það þunga áherslu að mikil ánægja er með hvernig Veiðimálastofnun hefur starfað og að starfsemi hennar verði ekki sett í uppnám. 


 

Mynd; Aðalfundur LS - Hans U. Ólason SVH, Reynir Þrastarson SVFR, Hafsteinn Kjartansson SVFA og Ingólfur Þorbjörnsson SVFA.












Sunnudagur 11. október 2009

Myndir: Fáskrúð í Dölum - Stebbastrengur

Fáskrúð í Dölum - Veiðar í Stebbastreng sumarið 2009

Við birtum nú myndasyrpu sem við fengum senda fyrr í sumar frá veiðimönnum sem voru við veiðar í Fáskrúð dagana 11-13. ágúst.   Myndirnar sýna veiðimanninn Heimi Kristjánsson og son hans, glíma við lax í Stebbastreng frá einstaklega skemmtilegu sjónarhorni. Veiðifélagi...

Lesa áfram


Miðvikudagur 30. september 2009

Veiði lokið í Fáskrúð í Dölum - 456 laxar á land

Veiði lauk á hádegi í dag við Fáskrúð í Dölum. Síðasta skagahollið landaði fjórum löxum við erfiðar aðstæður og mikið vatn.   Að sögn veiðimanna setti mikill kuldi strik í reikninginn við veiðiskap. Krapi var í ánni og sem dæmi má nefna að neysluvatnið var frosið...

Lesa áfram


Mánudagur 28. september 2009

Andakílsá stendur í 649 löxum og Fáskrúð með 452 laxa

Andakílsá í 649 laxa veiði - Laugarfljótið fullt af laxi

Mjög góð veiði hefur verið undanfarnar þrjár vikur í Andakílsá. Skagaholl sem var við veiðar í gær, sunnudaginn 27. september landaði 22 löxum. Þar af fengust 20 á flugu og 2 á maðk. Mikið vatn er í kílnum og fengu veiðimenn 18 af þessum löxum frá Laugafljóti og niður...

Lesa áfram


Tilkynningar


Föstudagur 3. febrúar 2012

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.