Fimmtudagur 19. janúar 2012
Aðalfundur 2012
Í gærkvöldi var haldinn aðalfundur Stangaveiðifélags Akraness að Suðurgötu 108.
Fyrir utan venjuleg aðalfundarstörf, var kosið um nýjan formann.
Búi Örlygsson bauð sig einn fram og hlaut hann kosningu með öllum atkvæðum greiddum.
Fráfarandi formanni Hafsteinn Kjartanssyni sem hefur stýrt félaginu af eljusemi og myndarskap síðastliðinn 10 ár þökkum við mikið vel fyrir.
Einnig var Sigurður Halldór Sævarsson kosinn varamaður í stjórn fyrir Ásgrím Kárason sem hefur verið í stjórn félagsins vel á annan áratug og þökkum við honum einnig vel fyrir.
19. manns sóttu fundinn sem þykir ekki gott og greinilegt var að landsleikur í handbolta skaraðist á við fundinn.
Aðalfundargerð má sjá hér
Miðvikudagur 16. nóvember 2011
Stangaveiðifélag SVFR framlengir í þremur veiðiám.
Bjarni Júlíusson formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur hefur varla undan þessa dagana að skrifa undir framlengar í veiðiánum en í morgun var skrifað undir nýja saminga í Laxá í Dölum og Fáskrúð í Dölum. Veiðin var dræm í Laxá í Dölum í sumar en veiðin...
Lesa áfram
Föstudagur 24. júní 2011
Veiðidagur fjölskyldunnar 26. júní 2011
Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 26. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið. Landssamband Stangaveiðifélaga hefur staðið fyrir Veiðidegi Fjölskyldunnar í á þriðja áratug...
Lesa áfram
Mánudagur 30. maí 2011
Fluguveiðinámskeið Veiðiheims.
Dagana 4. og 5. júní fara fram fluguveiðinámskeið Veiðiheims við silungasvæði Andakílsár. Farið verður yfir allt sem viðkemur fluguveiðinni, fluguhnýtingar, veiðistaðalestur, hringrás lax og silungs og einnig verður farið yfir fluguköstin. Námskeiðin eru jafnt...
Lesa áfram
Tilkynningar
Föstudagur 3. febrúar 2012
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...
Lesa áfram