Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Miðvikudagur 23. júní 2010

Fyrstu laxarnir úr Andakílsá í gær

Lítið var að gerast fyrstu tvo daga veiðitímabilsins í Andakílnum sem opnaði eins og kunnugt er á sunnudag.

En í gær, á fyrsta Skagadeginum í sumar fengust tveir laxar. Fyrir hópnum fór Pétur Óðinsson húsvörður með meiru af Skaganum, en fengu þeir félagar tvo nýgengna laxa um morguninn og misstu annan.

 

Pétur landaði fyrsta laxi sumarsins í Sleifarkvörnum, veiðistað númer tólf. Annar lax fékkst í Fossabakka Neðri en það er veiðistaður númer átta. Misstu veiðimenn einnig lax í Efri Fossbakkahyl, veiðistað númer fjögur.

 

Ánægjuleg byrjun á laxveiðitímabilinu við Andakílsá en undanfarin ár hefur júnímánuður gefið um 10 laxa á dagana tíu. Næsti Skagadagur er 30. júní og munum við fylgjast náið með aflabrögðum þá.

 

Fyrsti laxinn sumarið 2010 kom úr Sleifarkvörnum 22. júní (Ljósm. AMK 2009)












Sunnudagur 20. júní 2010

Andakílsá opnaði í dag

Andakílsá - Litla Hamarskvörn

Við Litlu Hamarskvörn að kvöldi 20. júní 2010 (Ljósm. AMK)     Rólegt var um að litast á laxasvæði Andakílsár í dag en það opnaði fyrir veiði í morgun. Veiðimenn lönduðu einum fjögurra punda urriða í veiðistaðnum Volta á fluguna Blue Charm.   Þrátt fyrir...

Lesa áfram


Miðvikudagur 16. júní 2010

Fáskrúð í Dölum opnar senn

Nýgengnum laxi sleppt við Neðri Stapakvörn í Fáskrúð sumarið 2010

Veiðisumarið er formlega hafið. Góðar opnanir og fréttir af laxaferðum víða um land gefa veiðimönnum óneitanlega tækifæri til að hlakka enn frekar til sumarsins við Fáskrúð. Ekki er ólíklegt að sá silfraði fari að láta sjá sig...

Lesa áfram


Mánudagur 14. júní 2010

Að sleppa laxi

Til að hámarka árangur veiðimanna sem ákveða að stunda veiða og sleppa á vegum félagsins leituðum við ráða hjá fróðari mönnum í þeim efnum. Fáir hafa víðtækari reynslu í því að veiða og sleppa hér á landi en Pétur Pétursson við Vatnsdalsá þar...

Lesa áfram


Tilkynningar


Föstudagur 3. febrúar 2012

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.