Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Fimmtudagur 24. júní 2010

Veiðidagur fjölskyldunnar 27. júní

   Landssamband Stangaveiðifélaga

 

VEIÐIDAGUR fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 27. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið.

 

Í ár fagnar Landssamband Stangaveiðifélaga 60 ára afmæli og hefur staðið fyrir Veiðidegi Fjölskyldunnar í á þriðja áratug ásamt veiðiréttareigendum. Hugmyndin á bak við daginn er að kynna stangveiði sem fjölskylduíþrótt. Í ár verður 31 vatn í boði á veiðideginum.

 

Eftirtaldir veiðistaðir verða í boði frítt fyrir alla fjölskylduna:

 

Á Suðvesturhorni landsins verður frítt að veiða í Elliðavatni, Vífilstaðavatni, Meðalfellsvatni, Þingvallavatni fyrir landi Þjóðgarðsins og Úlfljótsvatni.

 

Á Vesturlandi og Vestfjörðum verður frítt að veiða í Geitabergsvatni, Þórisstaðavatni, Eyrarvatni, Skorradalsvatni í landi Indriðastaða, Langavatni á Mýrum, Hítarvatni,

Hraunsfjarðarvatni, Baulárvallavatni, Haukadalsvatni, Vatnsdalsvatni í Vatnsfirði og Syðridalsvatni í Bolungarvík.

 

 

Fleiri vötn og nánari upplýsingar má finna á vefnum www.landssambandid.is












Miðvikudagur 23. júní 2010

Fyrstu laxarnir úr Andakílsá í gær

Lítið var að gerast fyrstu tvo daga veiðitímabilsins í Andakílnum sem opnaði eins og kunnugt er á sunnudag. En í gær, á fyrsta Skagadeginum í sumar fengust tveir laxar. Fyrir hópnum fór Pétur Óðinsson húsvörður með meiru af Skaganum, en fengu þeir...

Lesa áfram


Sunnudagur 20. júní 2010

Andakílsá opnaði í dag

Andakílsá - Litla Hamarskvörn

Við Litlu Hamarskvörn að kvöldi 20. júní 2010 (Ljósm. AMK)     Rólegt var um að litast á laxasvæði Andakílsár í dag en það opnaði fyrir veiði í morgun. Veiðimenn lönduðu einum fjögurra punda urriða í veiðistaðnum Volta á fluguna Blue Charm.   Þrátt fyrir...

Lesa áfram


Miðvikudagur 16. júní 2010

Fáskrúð í Dölum opnar senn

Nýgengnum laxi sleppt við Neðri Stapakvörn í Fáskrúð sumarið 2010

Veiðisumarið er formlega hafið. Góðar opnanir og fréttir af laxaferðum víða um land gefa veiðimönnum óneitanlega tækifæri til að hlakka enn frekar til sumarsins við Fáskrúð. Ekki er ólíklegt að sá silfraði fari að láta sjá sig...

Lesa áfram


Tilkynningar


Föstudagur 3. febrúar 2012

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.