Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Mánudagur 26. júlí 2010

Fáskrúð komin í 120 laxa við erfiðar aðstæður

Skagaholl sem hóf veiðar í dag við afar erfiðar aðstæður, lítið vatn og gríðarlegan vatnshita, hafði landað 87 cm laxi úr Neðri Barka þegar fréttaritari ræddi við þá nú um klukkan 18. Fáskrúð hefur nú skilað 120 löxum í bók en tölur sem við höfum frá 23. júlí í fyrra sýna að á svipuðum tíma eða þrem dögum fyrr, voru laxarnir 92 talsins. Athygli vekur að síðustu holl veiddu vel þrátt fyrir aðstæður, fengu ýmist kvótann eða gerðu betur.

 

Stórlaxinn sem veiðimenn fengu í Neðri Barka í dag tók agn veiðimanna í "kýlinu" svokallaða og er hann áætlaður tæp 13.5 pund eða 6.7 kg samkvæmt kvarða Veiðimálastofnunar. Augljós merki þess að laxinn hafi barist við miklar grynningar á leið sinni upp ána voru áberandi á kviði laxins.

 

Engin væta hefur gert vart við sig í Dölunum sem aukið getur vatnsmagn í Fáskrúð en laxinn safnast saman á nokkra staði eins og t.d. Katlafoss, Neðri Barka, Viðbjóð og Brúarstrengina. Einnig höfðu veiðimenn á orði að eitthvað af laxi hefði komið undanfarið úr Hávaða, en Hellufljótið hafi verið þögult sem gröfin eftir að hafa gefið nokkra laxa um miðjan mánuðinn.

 

Við uppfærum fréttir úr Fáskrúð um leið og þær berast og fáum vonandi nokkrar myndir til birtingar með.












Sunnudagur 18. júlí 2010

Fáskrúð og Andakílsá

Flugulax úr Hellunni í Fáskrúð

Andakílsá fór yfir 100 laxa múrinn í síðustu viku og er það svipuð veiði og á sama tíma í fyrra.   Skagadagarnir 8-10 júlí gáfu 18 laxa veiði. Holl sem veiddi stórstreymisdagana 12-14. júlí fékk 16 laxa og missti töluvert af löxum, en takan var oft...

Lesa áfram


Fimmtudagur 8. júlí 2010

Fjörtíu og sex fyrstu vikuna í Fáskrúð

Efri Brúarstrengur

Góður gangur hefur verið við Fáskrúð undanfarna daga en síðan áin opnaði 30. júní hafa verið færðir til bókar 46 laxar á stangirnar tvær. Til samanburðar veiddust 9 laxar fyrstu vikuna í fyrra.   Skagavikan var þannig að opnunarhollið landaði 10 löxum...

Lesa áfram


Fimmtudagur 1. júlí 2010

Kroppast upp í Fáskrúð

Lax úr Viðbjóð í dag.

Hvassviðri setti svip sinn á veiðiskap í Fáskrúð í dag en morgunvaktin skilaði einum laxi á land og þrír laxar fengust nú undir kvöld. Samtals eru þá komnir átta laxar á land þessa fyrstu daga í Fáskrúð en opnunarhollið líkur veiði á morgun. Í dag fengust tveir í Neðri...

Lesa áfram


Tilkynningar


Föstudagur 3. febrúar 2012

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.