Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Föstudagur 27. janúar 2012

Fluguhnýtingarkvöld miðvikudagskvöldið 25. janúar 2012

Síðastliðið miðvikudagskvöld var haldið fyrsta fluguhnýtingarkvöld þessa árs í húsnæði félagsins að Suðurgötu108.

 

Umsjón með fluguhnýtingarkvöldunum hefur verið Svavar K. Garðarson og hefur hann sýnt óeigingjarnt starf við það og er honum þakkað vel fyrir það.

 

Lögð var áhersla á fluguna Zonker, Gunnar Gunnarsson var leiðbeinandi í þetta skiptið og er honum þakkað vel fyrir.

 

Eftirtaldar myndar voru teknar þetta kvöld.

 

 

Frá vinstri: Gunnar Gunnarsson, Svavar K. Garðarsson og Jónas Geirsson

 

 

Svavar K. Garðarsson

 

Frá vinstri: Gunnar Gunnarsson og Svavar K. Garðarsson

 











Fimmtudagur 19. janúar 2012

Aðalfundur 2012

Í gærkvöldi var haldinn aðalfundur Stangaveiðifélags Akraness að Suðurgötu 108.   Fyrir utan venjuleg aðalfundarstörf, var kosið um nýjan formann. Búi Örlygsson bauð sig einn fram og hlaut hann kosningu með öllum atkvæðum greiddum.   Fráfarandi formanni Hafsteinn...

Lesa áfram


Miðvikudagur 16. nóvember 2011

Stangaveiðifélag SVFR framlengir í þremur veiðiám.

Bjarni Júlíusson formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur  hefur varla undan þessa dagana að skrifa undir framlengar í veiðiánum en í morgun var skrifað undir nýja saminga í Laxá í Dölum og Fáskrúð í Dölum. Veiðin var dræm í Laxá í Dölum í sumar en veiðin...

Lesa áfram


Föstudagur 24. júní 2011

Veiðidagur fjölskyldunnar 26. júní 2011

Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 26. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið.   Landssamband Stangaveiðifélaga hefur staðið fyrir Veiðidegi Fjölskyldunnar í á þriðja áratug...

Lesa áfram


Tilkynningar


Miðvikudagur 15. febrúar 2012

Þriðja fluguhnýtingakvöldið

Þriðja fluguhnýtingakvöld vetrarins verður miðvikudaginn 22. febrúar kl 20:00 í húsnæði félagsins að Suðurgötu 108 klukkan 20:00...

Lesa áfram


Föstudagur 3. febrúar 2012

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness eru seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.