Veiðin í Fáskrúð var mjög góð í sumar og hljóðaði upp á 456 laxa sem er með því betra sem veiðst hefur á svæðinu frá upphafi.
Ef byrjað er á að skoða viku 1 hefur veiðin farið heldur rólega af stað og skilaði aðeins níu löxum á land. Laxarnir fengust þó nokkuð víða eða í stöðum eins og Tjaldkvörn, Hávaða, Eirkvörn, Efri Stapa, Viðbjóð, Efri Barka og Viðauka. Fyrsti laxinn í ánni veiddist í Efri Barka 1. júlí en staðurinn skilaði samt sem áður einungis þrem löxum á land í allt sumar.
Í viku 2 byrjuðu bæði Efri og Neðri Brúarstrengir að gefa góða summu af laxi en alls gáfu strengirnir tveir samtals 74 af 152 veiddum löxum í júlí. Efri Brúarstrengur gaf 59 laxa í júlí og Neðri Brúarstrengur gaf 15 laxa. Þriðji aflahæsti veiðistaðurinn í júlí var Leynir með 10 laxa, fjórði var Viðbjóður með 9 laxa og fimmti var Eirkvörn með alls 8 laxa.
Neðri Stapakvörn endaði sem þriðji aflahæsti staðurinn í ánni yfir sumarið en samt sem áður komu ekki nema 2 laxar þaðan í júlí. Strax fyrstu vikuna í ágúst fengust 9 laxar í Neðri Stapa og endaði mánuðurinn þar í 21 veiddum löxum. Í september skilaði staðurinn 24 löxum og alls 47 yfir mánuðina þrjá.
Í byrjun ágúst veiddist fyrsti laxinn í Hellufljóti sem verður að teljast mjög undarlegt. Hellan skilaði 15 löxum í sumar og endaði sem tíundi aflahæsti staðurinn í ánni.
Þriðju vikuna í ágúst gáfu Katlafossar 7 laxa og þar bættust við 2 laxar fyrir mánaðarlok. Katlafossar enduðu í sjötta sæti yfir sumarið með 20 laxa veiði.
Laxhylur gaf 8 laxa í júlí, 38 laxa í ágúst og 21 í september og endaði þar með sem aflahæsti staðurinn í sumar með 67 laxa. Neðri Barki kom sterkur inn í ágúst með 22 laxa veiði og endaði sem fjórði aflahæsti yfir sumarið með 44 laxa.

Í september hélt Neðri Stapi áfram að gefa vel og skráðir voru 13 laxar fyrstu vikuna þar. Veiðileysa gaf sinn fyrsta og eina lax í sumar að ra vikuna í september.
Miðfljótið gaf 9 laxa yfir tímabilið, fjóra í júlí og fimm í september. Neðstafljót náði sér aldrei á strik og veiddust aðeins tveir laxar þar í sumar.
Laxhylur, Efri Strengur, Neðri Stapi og Neðri Barki voru yfirburða veiðistaðir í september og enduðu í topp 5 ásamt Efri Brúarstreng yfir sumarið í heild.
Þeir staðir sem skiluðu ekki laxi í sumar voru Víðiker, Blesa, Skrúður, Gullkvörn og sem fyrr, Bakkastrengur.
Skipting vikna var þannig að fjórða vika tímabilsins var aflahæst með 60 laxa en fast á hæla hennar voru vikur þrjú og fimm með 54 og 58 laxa veiði. Vika eitt gaf minnst eða 9 laxa og síðasta vikan, sú tólfta, gaf næst minnst í sumar eða einungis 15 laxa.
Í töflunni hér að neðan má sjá ítarlega sundurliðun á veiðinni í einstaka veiðistöðum, í hverjum mánuði og viku fyrir sig:
Hér fyrir neðan gefur að líta aflahæstu veiðistaði og hvenær fyrst veiddist lax á hverjum stað:
Veitt og sleppt, skipting agns, þyngstu laxar ofl:
Efri Strengur skilaði 28 löxum á land í sumar.
Neðri Barki endaði í 44 löxum.
Laxhylur var aflahæstur með 67 laxa.
Efri Brúarstrengur skilaði 62 löxum í bók.
Neðri Stapakvörn kom á óvart með 47 laxa veiði.
|
Ljósmyndir; AMK - Ábendingar berist á tölvupósti hér
Sextán manns sóttu aðalfund Landssambands Stangaveiðifélaga undir yfirskriftinni Framtíð LS og hlutverk þess fyrir Stangaveiðifélög. Fundurinn var að þessu sinni haldinn hjá okkur í SVFA á Akranesi síðastliðinn laugardag. Fyrr um morguninn fór fram formannafundur þar...
Við birtum nú myndasyrpu sem við fengum senda fyrr í sumar frá veiðimönnum sem voru við veiðar í Fáskrúð dagana 11-13. ágúst. Myndirnar sýna veiðimanninn Heimi Kristjánsson og son hans, glíma við lax í Stebbastreng frá einstaklega skemmtilegu sjónarhorni. Veiðifélagi...
Veiði lauk á hádegi í dag við Fáskrúð í Dölum. Síðasta skagahollið landaði fjórum löxum við erfiðar aðstæður og mikið vatn. Að sögn veiðimanna setti mikill kuldi strik í reikninginn við veiðiskap. Krapi var í ánni og sem dæmi má nefna að neysluvatnið var frosið...
Tilkynningar
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...
Lesa áfram
Myndbönd af starfsemi SVFA
Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.