Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Mánudagur 30. maí 2011

Fluguveiðinámskeið Veiðiheims.

Dagana 4. og 5. júní fara fram fluguveiðinámskeið Veiðiheims við silungasvæði Andakílsár.

Farið verður yfir allt sem viðkemur fluguveiðinni, fluguhnýtingar, veiðistaðalestur, hringrás lax og silungs og einnig verður farið yfir fluguköstin. 
Námskeiðin eru jafnt fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref sem og þá sem eru lengra komnir.

Allt efni til hnýtinga er á staðnum sem og flugustangir.  Veiðimönnum er að sjálfsögðu heimilt að taka með sínar eigin græjur ef að þeir vilja læra sérstaklega á þær.

Boðið verður upp á tvö tveggja daga námskeið, það fyrra frá 9:00-12:30 og það seinna er frá 13:00-16:30.

Námskeiðisgjald fyrir félagsmenn SVFA er 8.000.- kr en aðrir borga 20% hærra verð.

 

Allar upplýsingar má finna á www.veidiheimur.is

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og fer skráning fram á heimasíðu okkar og í síma

692-2376

.












Þriðjudagur 17. maí 2011

Afmæliskvöldverður SVFA

Ákveðið hefur verið að afmæliskvöldverður Stangaveiðifélags Akraness verði föstudaginn 27. maí í Gamla kaupfélaginu að Kirkjubraut 11, Akranesi.   Dagskráin hefst með fordrykk milli kl. 19:30 og 20:00.   Verð Kr 3.000 og greiðist við innganginn.   Eftirfarandi...

Lesa áfram


Fimmtudagur 5. maí 2011

Afmælishátíð Stangaveiðifélags Akraness.

      Í tilefni 70. ára afmælis SVFA um þessar mundir hefur stjórn félagsins ákveðið að halda afmælisfagnað Í Gamla Kaupfélaginu föstudaginn 27. maí næstkomandi. Þáttöku þarf að tilkynna stjórnarmeðlimum fyrir 15. maí. (Bjarni 899-6229, bjarni@veislumatur.is...

Lesa áfram


Mánudagur 11. apríl 2011

Myndband í tilefni 70 ára afmælis SVFA

Stangaveiðifélag Akraness verður 70 ára núna í ár og var gert myndband í tilefni þess.  Myndefni var tekið upp á stjórnarfundi, aðalfundi og söludegi  veiðileyfa. Einnig var tekið upp viðtal við Hafstein formann.   Myndbandið gerði Sævar Berg Sigurðsson...

Lesa áfram


Tilkynningar


Föstudagur 3. febrúar 2012

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.