Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Miðvikudagur 30. september 2009

Veiði lokið í Fáskrúð í Dölum - 456 laxar á land

Veiði lauk á hádegi í dag við Fáskrúð í Dölum. Síðasta skagahollið landaði fjórum löxum við erfiðar aðstæður og mikið vatn.

 

Að sögn veiðimanna setti mikill kuldi strik í reikninginn við veiðiskap. Krapi var í ánni og sem dæmi má nefna að neysluvatnið var frosið í leiðslum langar leiðir. Veiðimenn fengu þrjá laxa á flugu, tvo á Breiðunni og einn í Laxhyl. Að auki fékkst einn lax á Toby í Neðri Barka.

Hljóðar þá lokatalan upp á 456 laxa sem er með því betra sem veiðst hefur í Fáskrúð í áraraðir. Ef skoðuð er sérstaklega veiði síðastliðinna níu ára eða á tímabilinu 2000 til 2008, má sjá að veiðin í sumar er sú besta af þeim, og vel yfir meðaltalinu sem eru 236 laxar.

 

Í veiðibókinni frá því í sumar má finna margt fróðlegt. Við höfum tekið saman nokkrar tölur hér að neðan.

 

  • Alls veiddust í Fáskrúð 456 laxar - 120 á flugu, 6 á spón og 330 á maðk.
  • Fyrsti laxinn veiddist 1. júlí í Neðri Barka á maðk - Hrygna sem vigtaði 3.5 kg
  • Þyngsti laxinn veiddist 18. júlí í Miðfljóti á maðk - Hængur sem vigtaði 6.0 kg
  • Þyngsti flugulaxinn veiddist 12. september í Viðauka - Hrygna sem mæld var 80 cm og áætluð um 5.3 kg. Laxinum var sleppt.
  • Júlí:     152 laxar - 14 á flugu og 138 á maðk - 6 löxum var sleppt.
  • Ágúst: 171 laxar - 46 á flugu og 125 á maðk - 20 löxum var sleppt.
  • Sept:   133 laxar - 60 á flugu, 67 á maðk og 6 á spón - 32 löxum var sleppt.
  • Á veiðitímabilinu slepptu veiðimenn samkvæmt veiðibók 58 löxum. En flugulöxum var að vísu ekki eingöngu sleppt því að alls fengu 9 laxar af þessum 58 frelsið aftur eftir að hafa verið landað á maðk eða spón.
  • Ein Bleikja er skráð í veiðibók þann 21. ágúst í Hávaða og vigtaði hún 1.5 kg.
     

 

 

Þyngsti flugulaxinn var 80 cm, 5.3 kg hrygna úr Viðauka.

 

Nýgengnir laxar voru að veiðast fram til 20. september.












Mánudagur 28. september 2009

Andakílsá stendur í 649 löxum og Fáskrúð með 452 laxa

Andakílsá í 649 laxa veiði - Laugarfljótið fullt af laxi

Mjög góð veiði hefur verið undanfarnar þrjár vikur í Andakílsá. Skagaholl sem var við veiðar í gær, sunnudaginn 27. september landaði 22 löxum. Þar af fengust 20 á flugu og 2 á maðk. Mikið vatn er í kílnum og fengu veiðimenn 18 af þessum löxum frá Laugafljóti og niður...

Lesa áfram


Mánudagur 21. september 2009

Fáskrúð í Dölum orðin betri en í fyrra með 433 laxa veiði

Ungur veiðimaður með lax á flugu í Efri Streng í Fáskrúð

  Fáskrúð í Dölum hafði á hádegi í gær 20. september, náð 433 laxa veiði, sem er einum laxi meira en allt tímabilið í fyrra. Nú eiga fimm holl enn eftir að ljúka veiðum svo þessi tala á eflaust eftir að hækka.   Misskilningur hefur átt sér stað í sambandi...

Lesa áfram


Miðvikudagur 16. september 2009

Stórlax á land í Borgarfirði 16.sept

Skagamaðurinn Jónas Geirsson með stórlax úr Þverá í Borgarfirði

Nú í september veiddist tuttugu og eins punda hængur í Klapparfljóti í Þverá í Borgarfirði. Það væri ekki frásögu færandi á þessum vef nema fyrir þær sakir að sá sem veiddi laxinn var skagamaðurinn Jónas Geirsson, tannlæknir og stjórnarmaður í SVFA. Við höfum undir...

Lesa áfram


Tilkynningar


Föstudagur 3. febrúar 2012

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.