Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Fimmtudagur 8. júlí 2010

Fjörtíu og sex fyrstu vikuna í Fáskrúð

Góður gangur hefur verið við Fáskrúð undanfarna daga en síðan áin opnaði 30. júní hafa verið færðir til bókar 46 laxar á stangirnar tvær. Til samanburðar veiddust 9 laxar fyrstu vikuna í fyrra.

 

Skagavikan var þannig að opnunarhollið landaði 10 löxum og af þeim var 4 sleppt. Annað hollið fékk 16 laxa vítt og breitt um ána og slepptu veiðimenn 8 af þeim löxum. Þriðja hollið landaði svo 8 löxum og komu þeir úr Viðbjóð, Hávaða og Efri Brúarstreng en þar eru skráðir m.a. tíu og ellefu punda stórlaxar. Fyrsta Reykjavíkurhollið í sumar lauk veiðum í dag en þar var kvótinn tekinn, 12 laxar. Fengust 10 í Brúarstrengjunum, 1 í Katlafossi og 1 í Hávaða.

 

Mikið er um skráða laxa í Brúarstrengjunum þessa fyrstu veiðiviku og er þar Efri mjög drjúgur. Báðir strengirnir saman hafa gefið um helming veiðinnar það sem af er tímabili eða 22 laxa.

 

Veiddir laxar eru sem fyrr segir 46 talsins, teknir á maðk 33, flugan gaf 13 og slepptir laxar eru 12.

 

Efri Brúarstrengur

Efri Brúarstrengur gefur jafnan mikinn fjölda laxa í upphafi tímabils og út júlímánuð.












Fimmtudagur 1. júlí 2010

Kroppast upp í Fáskrúð

Lax úr Viðbjóð í dag.

Hvassviðri setti svip sinn á veiðiskap í Fáskrúð í dag en morgunvaktin skilaði einum laxi á land og þrír laxar fengust nú undir kvöld. Samtals eru þá komnir átta laxar á land þessa fyrstu daga í Fáskrúð en opnunarhollið líkur veiði á morgun. Í dag fengust tveir í Neðri...

Lesa áfram


Miðvikudagur 30. júní 2010

Góð byrjun í Fáskrúð

Fáskrúð í Dölum í dag

Skagamenn sem opnuðu Fáskrúð í dag lönduðu fjórum löxum á mið- og efra svæði árinnar.   Allir laxarnir fengust á flugu en Skúli Garðarsson fékk fyrsta laxinn í upphafi vaktar í veiðistaðnum Viðbjóð. Var það lúsugur smálax sem tók svarta frances keilutúpu...

Lesa áfram


Sunnudagur 27. júní 2010

Sjö laxa dagur við Andakílsá

Veiðistaður Fimm gaf þrjá laxa í dag

Líflegt hefur verið við Andakílsá síðustu daga en veiðimenn sem voru að ljúka veiðum lönduðu sjö löxum í dag. Fengust 3 laxar í veiðistað Þrjú, 3 í veiðistað Fimm og 1 í Nátthagahyl. Allir laxarnir fengust á maðk og vigtuðu þeir frá þremur og upp í sjö pund. Sannarlega...

Lesa áfram


Tilkynningar


Föstudagur 3. febrúar 2012

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.