Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Laxá í Leirársveit

 

Bakkastrengur - Laxá í Leirársveit

Bakkastrengur - Laxá í Leirársveit

 

Ljósmynd - Fáskrúð í Dölum.

 

 

Margir veiðimenn þekkja þessa einstaklega fallegu og fjölbreyttu laxveiðiá í Leirársveitinni en SVFA

hefur boðið upp á nokkrar stangir til félagsmanna undanfarin ár.

 

Laxá í Leirársveit fellur úr Eyrarvatni í Svínadal og til sjávar hjá Súlunesi en ósasvæði árinnar, Leirárvogar, sést vel þegar ekinn er þjóðvegur 1 við gamla sláturfélagið.
Veitt er með 6-7 stöngum í Laxá og geymir áin einn nafntogaðasta veiðistað landsins, hið margrómaða Miðfellsfljót.

 

Á dögum SVFA er veitt frá hádegi til hádegis og er eingöngu leyfð fluguveiði.
Kvóti er 8 laxar á stöng á dag. Veiðimenn eru beðnir um að tileinka sér þær reglur sem gilda á veiðisvæði Laxár í Leirársveit áður en haldið er til veiða.

 

Sumarið 2009 veiddust 1230 laxar. Árið 2008 veiddust alls 1588 laxar í ánni sem telst mjög gott sé litið til síðustu ára en til samanburðar veiddust 820 laxar árið 2007.

Meðalveiði (1998-2008) samtals 975 laxar.
Mest veiddist í ánni árið 1988 alls 1887 laxar
Minnst 545 laxar árið 1982.

 

Full þjónusta er í veiðihúsinu við Lambhaga en þar stendur meðalstórt og fallegt veiðihús. Þægileg tveggja manna svefnherbergi eru í húsinu hvert með sér salernisaðstöðu og sturtu. Skyldufæði og gisting er í Laxá kr. 12.900 pr. sólarhring. Staðsetning veiðihúss við Lambhaga: GPS hnit 64°23'35.79"N, 21°49'30.03"W.

 



 Gott kynningarmyndband af Laxá í Leirársveit (á ensku) :

 


  

Tilkynningar


Miðvikudagur 15. febrúar 2012

Þriðja fluguhnýtingakvöldið

Þriðja fluguhnýtingakvöld vetrarins verður miðvikudaginn 22. febrúar kl 20:00 í húsnæði félagsins að Suðurgötu 108 klukkan 20:00...

Lesa áfram


Föstudagur 3. febrúar 2012

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness eru seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.