Fimmtudagur 5. janúar 2012
Tilkynning frá Stangaveiðifélagi Akraness um sölu og úthlutun veiðileyfa 2012 og aðalfund árið 2012
Aðalsöludagur veiðileyfa verður laugardaginn 28. jan. n.k. og fer fram að Suðurgötu 108. Þeir sem ætla að kaupa
veiðileyfi dragi númer frá kl. 11:00-12:00 og verða leyfin afgreidd eftir þeim númerum kl. 14:00 sama dag. Mánudaginn 30. jan. kl. 20:00-21:00 verða óseld veiðileyfi seld félagsmönnum á skrifstofu félagsins að Suðurgötu 108, eftir það verða þau einnig boðin utanfélagsmönnum.
Félagar þurfa að velja sér veiðifélaga og ber að nafngreina þá og veiðiá áður en númer er dregið og dregur einn fyrir sig og sína veiðifélaga. Fjarstöddum félögum er heimilt að gefa öðrum skriflegt umboð til að draga fyrir sig. Skylt er að greiða árgjald fyrir söludag.
Ekki verður tekið á móti greiðslu félagsgjalda á söludegi. Ákveðið hefur verið að gefa félagsmönnum kost á gjaldfresti á 50% keyptra veiðileyfa.
Greiðsluseðlar verða sendir út í mars fyrir eftirstöðvum með eindaga 1. maí, eftir það verða þau seld öðrum. Ef veiðileyfin eru staðgreidd á söludegi verður gefinn 5% afsláttur af helmingi verðs, sem annars greiðist fyrir 1. maí.
Veiðileyfi verða seld eftir sömu reglum og áður, þannig að menn hafi frjálst val í þeirri röð sem afgreiðslunúmer þeirra segir til um ef þeir eru mættir er sala hefst og kemur að þeirra númerum.
Í Fáskrúð eru tvær stangir á dag nema í tveim partíum þá eru þær þrjár. Þar eru tveir dagar seldir saman út á nöfn tveggja félagsmanna. Í verðskrá eru upplýsingar um daglegan veiðitíma og kvóta.
Á laxasvæðinu í Andakílsá eru dagarnir seldir með báðum stöngunum út á nöfn tveggja félagsmanna. Á stöku dögunum hefst veiði kl. 07:00 og má þá koma í húsið kvöldið áður. Í verðskrá eru upplýsingar um daglegan veiðitíma. Veiðikortið 2012 býðst félagsmönnum á kostnaðarverði kr. 5.000.- á söludegi, eftir það hjá Hafsteini Kjartanssyni í síma 899-6132. Kortið gefur rétt til veiði í 35 vötnum, sjá www.veidikortid.is.
Ef ágreiningur kemur upp um ofanskráðar reglur áskilur stjórnin sér rétt til að skera þar úr í hverju tilfelli.
Aðalfundur Stangaveiðifélags Akraness 2012
verður haldinn miðvikudaginn 18. janúar kl. 20:00 að Suðurgötu 108
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Stjórn SVFA
Vinsamlegast greiðið félagsgjaldið tímanlega með greiðsluseðli, það auðveldar vinnu stjórnar á söludegi.
Ekki verður tekið við greiðslu á félagsgjaldi á söludegi.
Fimmtudagur 15. desember 2011
Jólakveðja
Ágætu félagsmenn s.v.f.a.okkar bestu óskir um gleðileg Jól og farsælt komandi veiðiár. Stjórn S.v.f.a...
Lesa áfram
Mánudagur 28. nóvember 2011
Næsta fluguhnýtingarkvöld.
Næsta fluguhnýtingakvöld verður miðvikudaginn 7. desember kl 20:00 í salnum okkar Suðurgötu 108. Allir velkomnir, jafnt félagsmenn sem og aðrir...
Lesa áfram
Miðvikudagur 19. október 2011
Fluguhnýtingar veturinn 2011-2012
Fluguhnýtingar veturinn 2011-2012 Verða í sal félagsins Suðurgötu 108 kl 20,00 til 22,00 sem hér segir á Miðvikudögum í Fyrsta kvöld 26 Október Það sem tekið verður fyrir eru túpur Leiðbeinandi Jón Ólason Framhald auglýst nánar á hverju hnýtingakvöldi og á heimasíðu...
Lesa áfram
Tilkynningar
Miðvikudagur 15. febrúar 2012
Þriðja fluguhnýtingakvöldið
Þriðja fluguhnýtingakvöld vetrarins verður miðvikudaginn 22. febrúar kl 20:00 í húsnæði félagsins að Suðurgötu 108 klukkan 20:00...
Lesa áfram
Föstudagur 3. febrúar 2012
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness eru seld
Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og þakkar stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...
Lesa áfram