Vetrarstarf
Ákveðinn og fremur fámennur kjarni félagsmanna hefur haldið félagsstarfinu gangandi í gegnum árin. Úr þessum kjarna hafa komið þeir menn sem hafa gefið kost á sér til stjórnarstarfa og aðrir sem hafa verið boðnir og búnir til ýmissa framkvæmda fyrir félagið.
Skipulagt vetrarstarf hefur að mestum hluta legið niðri undanfarin ár en til stendur að halda regluleg fluguhnýtingarkvöld í vetur og reyna þar með að endurvekja félagslíf veiðimanna yfir vetrartímann.
Þetta er kærkomið tækifæri fyrir félagsmenn til þess að hittast og spjalla ásamt því að hnýta flugur.
Sérstakir leiðbeinendur hafa verið fengnir til þáttöku á þessum kvöldum og eru áhugasamir beðnir um að fylgjast vel með dagsetningum kvöldanna en þau verða með rólegu sniði og haldin á hraða sem allir ráða við. Öllum velkomið að líta við í kaffi og meðlæti og kynnast starfsemi félagsins nánar.
Fluguhnýtingakvöldin eru haldin í sal félagsins að suðurgötu 108, efri hæð og hefjast stundvíslega kl. 20:00 og standa til kl. 22:00. Hnýtarar þurfa að koma með sín eigin verkfæri.
Nánar verður auglýst hvaða flugur verða teknar fyrir á hvaða kvöldum þegar nær dregur.
Dagskrá 2011:
Er í vinnslu.
Dagskrá 2010:
3. febrúar - Sigurður Pálsson
17. febrúar - Gunnar Gunnarsson
24. febrúar - Jón Ólafsson
10. mars - Gunnar Gunnarsson
24. mars - Jón Ólafsson
7. apríl - Sigurður Pálsson
28. apríl - Jón og Gunnar
Dagskrá 2009:
12. feb. - fimmtud. - Sigurður Pálsson (Copper John, Himelfahrt, marfló)
26. feb. - fimmtud. - Sigurveig Runólfsdóttir (Red Frances, Black Sheep, Green Brahan)
12. mars - fimmtud. - Sigurður Pálsson (Gray Hackel, Dýrbítur)
26. mars - fimmtud. - Gunnar bólstrari (Magog Smelt, Muddler Minnow)
08. apríl - miðvikud. - Sigurður Pálsson (Grey Ghost)
15. apríl - miðvikud. - Gísli rakari (Peacock)
29. apríl - miðvikud. - Gunnar bólstrari (Afbrigði)
07. maí - fimmtud. - Sigurður Pálsson (Flæðamús)
28. maí - fimmtud. - Jón lögga