Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Mánudagur 14. júní 2010

Að sleppa laxi

Til að hámarka árangur veiðimanna sem ákveða að stunda veiða og sleppa á vegum félagsins leituðum við ráða hjá fróðari mönnum í þeim efnum. Fáir hafa víðtækari reynslu í því að veiða og sleppa hér á landi en Pétur Pétursson við Vatnsdalsá þar sem eingöngu er veitt og sleppt. Hefur sú aðferð verið notuð þar með frábærum árangri í 13 ár. Við fengum lánaðar nákvæmar upplýsingar um það hvernig skuli bera sig að við að sleppa laxi á sem árangurríkastan hátt. Njótið vel. 

 

Að sleppa laxi.

Það á við hér eins og í flestu öðru að reynslan er lykill kunnáttunnar þegar miðlað er hvernig best skuli staðið að sleppingum. Hér gilda ákveðin lögmál sem stuðla að því að laxinn komist óskaddaður aftur í umhverfi sitt til að geta haldið áfram því sem náttúran ætlast til af honum, sem er að tryggja náttúrulega hrygningu og þar með viðhald og afkomu seiðabúskaps árinnar sem hann tilheyrir.
 

Nokkrar helstu leiðbeiningar.
• Forðist að laxinn skaddist á oddhvössu grjóti eða öðru sem sært getur hold hans við löndun

- Ef aðstæður leyfa þá leggið fiskinn í mjúkt grasið meðan flugan er losuð úr
- Þurfi að losa fluguna úr í vatninu þá varist að þrýsta fiskinum í botninn þar sem grýttur botn getur skaðað hann
- Ef notast er við háf skal hann að vera hnútalaus 

• Takið laxinn ekki upp á sporðinum einum (á sérstaklega við um stórlax)
 


- Takið um sporðinn og haldið undir fiskinn aftan við hausinn þegar honum er lyft upp
- Snertið aldrei tálkn eða augu fisksins 


• Losið fluguna úr laxinum fljótt og örugglega

- Töng er nauðsynleg þegar losa á fluguna úr fiskinum
- Mælið fiskinn eins fljótt og kostur er
- Komið fiskinum strax í vatn


• Veljið hentugan sleppistað


 
- Hentugur staður er td. í straumjaðri
  (ekki þar sem straumur er mestur/mikill)
- Snúið fiskinum á móti rennsli vatnsins 
- Gefið fiskinum góðan tíma til að ná jafnvægi og styrk áður en honum er sleppt


Annað sem hafa ber í huga.

 

Misjafnt er hversu dasaður fiskur er eftir viðureign. Þegar fiskur er mjög þreyttur verðum vi ð þess fljótt vart í sleppingarferlinu. Ef við teljum svo vera þurfum við að gefa okkur góðan/lengri tíma með fiskinum til að tryggja að hann nái nauðsynlegri orku og styrk áður en við sleppum honum.

 

Fiskur getur verið óstýrilátur til að byrja með og kynnu þá einhverjir að halda að hann sé fullur orku ennþá, en svo þarf alls ekki að vera og því ber að fara að öllu með gát og halda honum föstum með sporðtaki. Þegar um stórlax er að ræða er þetta ekki óalgengt. 
 



Aðalatriðið er að fiskurinn róist og til þess að það megi verða er  mönnum bent á að láta ekkert trufla fiskinn, að enginn standi fyrir framan hann eða til hliðar við hann þannig að hann verði var við, meðan verið er að meðhöndla hann. Það hefur róandi áhrif á hann.  

 

Sleppið ekki takinu of fljótt.

Þegar fiskurinn hefur náð að vinna upp orku og styrk þá prufið að losa takið hægt og rólega af fiskinum (haldið eingöngu lauslega um sporðinn) til að sjá hvort hann hefur náð jafnvægi og færið ykkur frá honum í leiðinni, án þess þó að sleppa sporðtakinu.  Þetta má endurtaka þar til fiskurinn hefur náð fullkomnu jafnvægi. 

 

Til þess svo að fullvissa sig um að tilsettu marki sé náð þá er rétt að sleppa takinu af sporðinum, bakka hægt og rólega frá fiskinum og leyfa honum að hvílast á þessum sama stað.

Laxinn nær að endurhlaða orkuna fyllilega á 15 mínútum. Hinsvegar ef honum líður vel á þeim stað þar sem honum hefur verið sleppt, á hann það til að liggja þar mun lengur og er ekkert óeðlilegt við það. Þegar hann síðan ákveður að fara, þá yfirleitt dólar hann rólega út í hylinn með fullri reisn og lætur sem ekkert hafi skeð, eða er kannski bara búinn að gleyma.

 

Birt með leyfi af www.vatnsdalsa.is

 

Viðmiðunartafla Veiðimálastofnunar. - Á vef stofnunarinnar segir að töfluna megi nota til að sjá líklega þyngd ef lax er eingöngu lengdarmældur.

 

Lengd (cm)

Þyngd (kg)

Lengd (cm)

Þyngd (kg)

Lengd (cm)

Þyngd (kg)

 

40

0,7

65

3,0

90

7,4

41

0,8

66

3,1

91

7,7

42

0,9

67

3,2

92

7,9

43

0,9

68

3,4

93

8,1

44

1,0

69

3,5

94

8,4

45

1,0

70

3,6

95

8,7

46

1,1

71

3,8

96

8,9

47

1,2

72

4,0

97

9,2

48

1,3

73

4,1

98

9,4

49

1,3

74

4,3

99

9,7

50

1,4

75

4,4

100

10,0

51

1,5

76

4,6

101

10,3

52

1,6

77

4,8

102

10,6

53

1,7

78

5,0

103

10,9

54

1,8

79

5,1

104

11,2

55

1,8

80

5,3

105

11,5

56

1,9

81

5,5

106

11,8

57

2,0

82

5,7

107

12,1

58

2,1

83

5,9

108

12,4

59

2,2

84

6,1

109

12,8

60

2,4

85

6,3

110

13,1

61

2,5

86

6,5

111

13,4

62

2,6

87

6,7

112

13,8

63

2,7

88

7,0

113

14,1

64

2,8

89

7,2

114

14,5

 











Miðvikudagur 6. janúar 2010

Tuttugu bestu árin í Fáskrúð frá 1941 til 2009

Við höfum undir höndum skemmtilegar heimildir yfir veiði í Fáskrúð allt frá árinu 1941. Tölurnar tók saman veiðimaðurinn og fyrrverandi formaður SVFA, Kjartan Guðmundsson. Heimildirnar eru úr gömlum veiðibókum sem eru að finna á skrifstofu...

Lesa áfram


Fimmtudagur 10. desember 2009

Andakílsá - Veiðisumarið 2009

Nýlega kom út skýrsla árnefndar SVFR við Andakílsá fyrir tímabilið 2009.   Þar kemur fram að á liðnu ári veiddust samtals 706 laxar á svæðinu. Þar af 694 á laxasvæði árinnar. Þetta er því næst besta veiðin af síðastliðnum 40 árum í kílnum. Besta sumarið var...

Lesa áfram


Þriðjudagur 3. nóvember 2009

Samantekt - Fáskrúð í Dölum 2009

Fáskrúð í Dölum - Skipting vikna

Veiðin í Fáskrúð var mjög góð í sumar og hljóðaði upp á 456 laxa sem er með því betra sem veiðst hefur á svæðinu frá upphafi.   Ef byrjað er á að skoða viku 1 hefur veiðin farið heldur rólega af stað og skilaði aðeins níu löxum á land. Laxarnir fengust þó nokkuð...

Lesa áfram


Tilkynningar


Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness eru seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Fluguhnýtingarkvöld verður þann 8. febrúar 2012

Annað fluguhnýtingakvöld vetrarins verður miðvikudaginn 8. febrúar kl 20:00 í húsnæði félagsins að Suðurgötu 108 klukkan 20:00

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.