Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Sunnudagur 20. júní 2010

Andakílsá opnaði í dag

Andakílsá - Litla Hamarskvörn

Við Litlu Hamarskvörn að kvöldi 20. júní 2010 (Ljósm. AMK)

 

 

Rólegt var um að litast á laxasvæði Andakílsár í dag en það opnaði fyrir veiði í morgun. Veiðimenn lönduðu einum fjögurra punda urriða í veiðistaðnum Volta á fluguna Blue Charm.
 

Þrátt fyrir góðar fréttir af opnunum víða um land varð raunin ekki sú þennan fyrsta dag laxveiðitímabilsins í Andakílnum. Það má þó telja nokkuð líklegt að fyrsti laxinn komi á land fljótlega.

 

Samkvæmt veiðibók á silungasvæðinu veiddist ein þriggja punda bleikja á Klöppunum 7. júní á flugu en annars hefur silungasvæðið gefið fjórar bleikjur og sex ófrýnilegar flundrur það sem af er tímabili.











Miðvikudagur 16. júní 2010

Fáskrúð í Dölum opnar senn

Nýgengnum laxi sleppt við Neðri Stapakvörn í Fáskrúð sumarið 2010

Veiðisumarið er formlega hafið. Góðar opnanir og fréttir af laxaferðum víða um land gefa veiðimönnum óneitanlega tækifæri til að hlakka enn frekar til sumarsins við Fáskrúð. Ekki er ólíklegt að sá silfraði fari að láta sjá sig...

Lesa áfram


Mánudagur 14. júní 2010

Að sleppa laxi

Til að hámarka árangur veiðimanna sem ákveða að stunda veiða og sleppa á vegum félagsins leituðum við ráða hjá fróðari mönnum í þeim efnum. Fáir hafa víðtækari reynslu í því að veiða og sleppa hér á landi en Pétur Pétursson við Vatnsdalsá þar...

Lesa áfram


Miðvikudagur 6. janúar 2010

Tuttugu bestu árin í Fáskrúð frá 1941 til 2009

Við höfum undir höndum skemmtilegar heimildir yfir veiði í Fáskrúð allt frá árinu 1941. Tölurnar tók saman veiðimaðurinn og fyrrverandi formaður SVFA, Kjartan Guðmundsson. Heimildirnar eru úr gömlum veiðibókum sem eru að finna á skrifstofu...

Lesa áfram


Tilkynningar


Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness eru seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Fluguhnýtingarkvöld verður þann 8. febrúar 2012

Annað fluguhnýtingakvöld vetrarins verður miðvikudaginn 8. febrúar kl 20:00 í húsnæði félagsins að Suðurgötu 108 klukkan 20:00

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.