Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Sunnudagur 27. júní 2010

Sjö laxa dagur við Andakílsá

Líflegt hefur verið við Andakílsá síðustu daga en veiðimenn sem voru að ljúka veiðum lönduðu sjö löxum í dag. Fengust 3 laxar í veiðistað Þrjú, 3 í veiðistað Fimm og 1 í Nátthagahyl. Allir laxarnir fengust á maðk og vigtuðu þeir frá þremur og upp í sjö pund. Sannarlega flottur júníafli og næstu dagar ættu að verða spennandi þar sem stórstreymt er og laxar að sýna sig við ána.

 

Alls eru þá komnir sextán laxar á land þessa fyrstu viku sem veitt er á laxasvæðinu í sumar en til samanburðar veiddust aðeins tíu laxar í júnímánuði síðustu tvö ár. Núna komu fyrstu tveir laxarnir á land 22. júní, fjórir laxar 25. júní, þrír laxar 26. júní og sjö laxar í dag 27. júní.

 

Veiðistaðir sem hafa gefið laxa eru nokkrir en það eru Sleifarkvarnir, Þrjú, Neðri Fossbakkahylur, Efri Fossbakkahylur, Nátthagahylur og veiðistaður Fimm, en sá staður gaf einungis einn lax allt sumarið í fyrra. Staðurinn fékk yfirhalningu fyrir sumarið og virðist það vera að skila sér þessa fyrstu daga sem veitt er á svæðinu.

Þyngsti laxinn er 4 kg hængur úr Efri Fossbakkahyl sem fékkst á Blue Charm í gær 26. júní.

 

 

Veiðistaður Fimm gaf þrjá laxa í dag
Veiðistaður Fimm gaf þrjá laxa í dag. (Ljósm AMK 2010)

 

Lax skvettir sér við Nátthagahyl að kvöldi 27. júní
Lax skvettir sér í strengnum við Nátthagahyl 27. júní (Ljósm. AMK 2010)











Fimmtudagur 24. júní 2010

Veiðidagur fjölskyldunnar 27. júní

Landssamband Stangaveiðifélaga

     VEIÐIDAGUR fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 27. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið.   Í ár fagnar Landssamband Stangaveiðifélaga 60 ára afmæli og...

Lesa áfram


Miðvikudagur 23. júní 2010

Fyrstu laxarnir úr Andakílsá í gær

Lítið var að gerast fyrstu tvo daga veiðitímabilsins í Andakílnum sem opnaði eins og kunnugt er á sunnudag. En í gær, á fyrsta Skagadeginum í sumar fengust tveir laxar. Fyrir hópnum fór Pétur Óðinsson húsvörður með meiru af Skaganum, en fengu þeir...

Lesa áfram


Sunnudagur 20. júní 2010

Andakílsá opnaði í dag

Andakílsá - Litla Hamarskvörn

Við Litlu Hamarskvörn að kvöldi 20. júní 2010 (Ljósm. AMK)     Rólegt var um að litast á laxasvæði Andakílsár í dag en það opnaði fyrir veiði í morgun. Veiðimenn lönduðu einum fjögurra punda urriða í veiðistaðnum Volta á fluguna Blue Charm.   Þrátt fyrir...

Lesa áfram


Tilkynningar


Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness eru seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Fluguhnýtingarkvöld verður þann 8. febrúar 2012

Annað fluguhnýtingakvöld vetrarins verður miðvikudaginn 8. febrúar kl 20:00 í húsnæði félagsins að Suðurgötu 108 klukkan 20:00

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.