Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Miðvikudagur 30. júní 2010

Góð byrjun í Fáskrúð

Fáskrúð í Dölum í dag

 

Skagamenn sem opnuðu Fáskrúð í dag lönduðu fjórum löxum á mið- og efra svæði árinnar.

 

Allir laxarnir fengust á flugu en Skúli Garðarsson fékk fyrsta laxinn í upphafi vaktar í veiðistaðnum Viðbjóð. Var það lúsugur smálax sem tók svarta frances keilutúpu og var honum sleppt að viðureign lokinni. Á eftir kom einn 75 cm lax í Efri Stapa á svarta frances og annar 82 cm úr Laxhyl á Sunray Shadow.

 

Þessum löxum var sleppt en veiðimenn settu sér það markmið í upphafi vaktar að veiða sem mest á flugu og sleppa flestum löxum. Undir lok vaktar veiddist einnig lúsugur smálax í Eirkvörn. Í dag sáu veiðimenn laxa í Efri Brúarstreng og fyrir neðan þjóðvegsbrú sást líka til laxaferða.

 

Mynd; Birkir Erlingsson við Laxhyl í dag

 

 











Sunnudagur 27. júní 2010

Sjö laxa dagur við Andakílsá

Veiðistaður Fimm gaf þrjá laxa í dag

Líflegt hefur verið við Andakílsá síðustu daga en veiðimenn sem voru að ljúka veiðum lönduðu sjö löxum í dag. Fengust 3 laxar í veiðistað Þrjú, 3 í veiðistað Fimm og 1 í Nátthagahyl. Allir laxarnir fengust á maðk og vigtuðu þeir frá þremur og upp í sjö pund. Sannarlega...

Lesa áfram


Fimmtudagur 24. júní 2010

Veiðidagur fjölskyldunnar 27. júní

Landssamband Stangaveiðifélaga

     VEIÐIDAGUR fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 27. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið.   Í ár fagnar Landssamband Stangaveiðifélaga 60 ára afmæli og...

Lesa áfram


Miðvikudagur 23. júní 2010

Fyrstu laxarnir úr Andakílsá í gær

Lítið var að gerast fyrstu tvo daga veiðitímabilsins í Andakílnum sem opnaði eins og kunnugt er á sunnudag. En í gær, á fyrsta Skagadeginum í sumar fengust tveir laxar. Fyrir hópnum fór Pétur Óðinsson húsvörður með meiru af Skaganum, en fengu þeir...

Lesa áfram


Tilkynningar


Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness eru seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Fluguhnýtingarkvöld verður þann 8. febrúar 2012

Annað fluguhnýtingakvöld vetrarins verður miðvikudaginn 8. febrúar kl 20:00 í húsnæði félagsins að Suðurgötu 108 klukkan 20:00

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.