Upplýsingar um Stangaveiðifélag Akraness

Aðalvalmynd

Miðvikudagur 28. júlí 2010

Stórlax úr Fáskrúð - komin í 135 laxa veiði

 

Jónas Geirsson með 14 punda lax úr Barkakýlinu í Fáskrúð.

 

Síðasta stórstreymisparty sem stóð vaktina í Fáskrúð skilaði ánni í 135 laxa veiði sem verður að teljast mjög gott miðað við aðstæður.

 

Enn eiga tvo holl eftir að ljúka veiðum í júlí en mánuðurinn endaði í 152 löxum í fyrra.

 

Góð veiði er þrátt fyrir lítið vatn og mikinn hita og kom meðal annars á land glæsilegur stórlax hjá síðustu veiðimönnum. Hann mældist 88 cm og 7 kg og er því stærsti laxinn úr ánni til þessa. 

 

Alls landaði hollið sextán löxum og slepptu veiðimenn fjórum þeirra. Vel veiddist í Neðstafljóti en einungis einn kom á land úr Efri Brúarstreng.  Viðbjóður er sömuleiðis smekkfullur af laxi þessa stundina.

 

Fjórtan pundarann fékk Jónas Geirsson í Barkakýlinu og höfum við nú til birtingar nokkrar myndir frá ferð þeirra félaga.

 

Við hvetjum sömuleiðis aðra veiðimenn á vegum félagsins að senda okkur myndir frá ferðum sínum á netfangið ritari@svfa.is

 

  

 

 

 

Fallegur flugulax úr Neðstafljóti
Fallegur flugulax úr Neðstafljóti sem hefur gefið vel í þurrviðrinu undanfarið.

 

 

Veiðimaður kastar í Viðbjóð
Ásgrímur Kárason kastar í veiðistaðinn Viðbjóð, veiðimaður sést ef vel er skoðað !

 

Afli úr Neðstafljóti

Karl Ó. Alfreðsson með afla úr Neðstafljóti, einn á maðkinn og einn á fluguna.











Mánudagur 26. júlí 2010

Fáskrúð komin í 120 laxa við erfiðar aðstæður

Skagaholl sem hóf veiðar í dag við afar erfiðar aðstæður, lítið vatn og gríðarlegan vatnshita, hafði landað 87 cm laxi úr Neðri Barka þegar fréttaritari ræddi við þá nú um klukkan 18. Fáskrúð hefur nú skilað 120 löxum í bók en tölur sem við höfum frá 23...

Lesa áfram


Sunnudagur 18. júlí 2010

Fáskrúð og Andakílsá

Flugulax úr Hellunni í Fáskrúð

Andakílsá fór yfir 100 laxa múrinn í síðustu viku og er það svipuð veiði og á sama tíma í fyrra.   Skagadagarnir 8-10 júlí gáfu 18 laxa veiði. Holl sem veiddi stórstreymisdagana 12-14. júlí fékk 16 laxa og missti töluvert af löxum, en takan var oft...

Lesa áfram


Fimmtudagur 8. júlí 2010

Fjörtíu og sex fyrstu vikuna í Fáskrúð

Efri Brúarstrengur

Góður gangur hefur verið við Fáskrúð undanfarna daga en síðan áin opnaði 30. júní hafa verið færðir til bókar 46 laxar á stangirnar tvær. Til samanburðar veiddust 9 laxar fyrstu vikuna í fyrra.   Skagavikan var þannig að opnunarhollið landaði 10 löxum...

Lesa áfram


Tilkynningar


Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness eru seld

Öll veiðileyfi Stangaveiðifélags Akraness hafa verið seld. Sala veiðileyfanna gekk vel fyrir sig og stjórn Svfa félögum sem og öðrum vel fyrir...

Lesa áfram


Fluguhnýtingarkvöld verður þann 8. febrúar 2012

Annað fluguhnýtingakvöld vetrarins verður miðvikudaginn 8. febrúar kl 20:00 í húsnæði félagsins að Suðurgötu 108 klukkan 20:00

Lesa áfram


Myndbönd af starfsemi SVFA



Klakveiði og frágangur veiðihúss Fáskrúðar í Dölum.